Þjálfarahornið

Þjálfarahornið með Ed Maggiacomo

SR-Björninn 24. janúar 2006SR – Narfi 21. janúar 2006

Við byrjuðum strax af miklum ákafa, með nokkrum góðum sendingum og hörðum tæklingum. Nýju sóknarlínurnar okkar Mirek, Stefán og Steinar, Andy, Úlfar og Þorsteinn, og Helgi, Rúnar og Gauti, reyndust mjög góðar fyrir liðið. Sindri lék sem auka sóknarmaður sem kom inn þegar þörf var á og stóð sig vel. Þar sem Þórhallur kom aftur in í vörnina vorum við með 4 sterka varnarmenn, Þórhall, Zdenek, Kára og Guðmund. Birkir var svo fimmti varnarmaðurinn til taks. Leikmennirnir voru mjög einbeittir og léku mjög vel fyrir liðið. Þetta var sennilega einn okkar besti leikur í vetur og sambandið eða “chemistry” innan línanna var frábært. Við áttum 73 skot á markið en fengum á okkur 21, en ákefðin í sókninni var stundum svo mikil að við vorum stundum seinir aftur í vörn sem gaf mótherjanum 4 mörk. Við vorum mjög beittir í “face-off” en við unnum 50 af 68. Þá áttum við margar góðar tæklingar (hits), eða 31 alls. Mér fannst þó að við gæfum pökkin of oft frá okkur eða als 43 sinnum sem er of mikið. Þarna þurfum við að vinna mjög vel og bæta okkur. Sam sem áður er ekki hægt að kvarta yfir 16-4 sigri þar sem allar línurnar lögðu sitt f mörkum. Línan hans Helga gerði 7 mörk, Míreks lína var með 6 mörk og línan hns Andy með 3 mörk. Það er erfitt að velja úr stjörnu leiksins þar sem allir léku vel, en ég verð þó að nefna Þorstein sem lék af miklu hjarta, tók m.a. 3 til 4 risa tæklingar á sig og stökk strax eftir þær aftur inn í leikinn og skoraði m.a. mark eftir eina. Í heildina var ég mjög ánægður með leikinn og félagsandann á bekknum. Þetta var jákvæð reynsla og ég gat ekki farið fram á betri hokkí leik.

SR-Narfi 21. janúar 2006

Seinni leikur okkar þessa helgi var mun betri og við gátum séð hvernig “liðsheildin” steig aftur fram. Við vorum einbeittir og létum pökkinn ganga hratt og vel á milli manna. Nokkrir leikmenn stóðu út úr einsog Þorsteinn og Andy sem unnu vel í sínum stöðum. Ég byrjaði að gera nokkrar brytingar á línum í þessum leik og býst við að gera fleiri í nætu leikjum, þannig að þetta var tilraunastarfsemi að einhverju leyti þetta kvöld. Í heildina var ég ánægður með leikinn sem vannst 9-0.

SR-Narfi 20. janúar 2006

Þetta var fyrsti leikur okkar eftir jólin og við vorum seinir að koma okkur í gang. Glögglega kom í ljós fára æfingar undanfarið og hraðinn eftir því. Sendingar okkar voru ekki góðar og mikið um einstaklingsframtak, í stað fyrir liðsheildin réði ferðinni, einsog fyrir jól. Við áttum mörg skot á markið en við vorum ekki að skora. Við náðum 6-0 sigri en þetta var ekki leikur einbeitingarinnar hjá okkur.

Narfi – SR  22. október

Rútuferðin okkar til Akureyrar var betri og þægilegri en sú síðasta, enda betri rúta með myndbandi. Veðrið var frábært og við komum til Akureyra rétt stemmdir. Það sást á byrjun SR-inga að leikmenn voru í góðu skapi og kannski full kærulausir á köflum til að einbeita sér að leiknum. Eftir fyrstu lotu var staðan 1 – 0 fyrir okkur. Í leikhléi ræddum við um mikilvægi þess að spila af fullri alvöru allan tímann, og að skemmtunin væri mun meiri ef við lékum vel og sæjum árangurinn af góðum leik okkar á stigatöflunni. Strákarnir mættu því sterkir í aðra lotu og gerðu 8 mörk og síðan 5 mörk í þriðju lotu, og 14-0 sigur var staðreynd. Það var gaman að sjá þá Gauta, Þorstein og Úlfar ná loksins saman þar sem þeir skilja vel styrkleika hvor annars og “kommúnukera” vel saman. Héðan í frá ætla ég að kalla þessa línu “Young guns”, og ég hlakka til að sjá þá verða betri og betri er líður á tímabilið. Þakkir til liðstjóra og meistaraflokksráðs sem sáu um vel skipulagða ferð.

Björninn - SR 13. október

Leikir SR og Bjarnarins eru alltaf harðir en við héldum haus allan tímann og lékum agað allan leikinn, enda gáfu úrslitin það til kynna, 11-3 fyrir SR. Stein Rúnarsson átti einn sinn besta leik og skoraði 2 mörk og átti eina stoðsendingu. Því miður viðbeinsbrotnaði Steinn í 3. lotu og verður frá í heilan mánuð. Á stundum misttum við einbeitinguna í leiknum sem kostaði okkur tvö mörk. Við verðum að halda áfram að laga varnarleikinn okkar. Samantekið má segja að þetta hafi verið góð frammistaða þar sem við tókum á okkur aðeins 4 refsingar á móti 13 hjá Birninum.

SR – SA 8. október

Þann 8. október buðum við velkomna SA í sinni fyrstu ferð tímabilsins í Laugardalinn. Um leið var þetta fyrsti leikur hins nýja leikmanns SA, Slóvakans Lubomir Bobik. Leikurinn var mjög jafn þar til í 3. lotu er SA fékk 5. mín refsingu sem SR nýtti sér vel með því að skora 4 mörk. Leikurinn endaði svo 7-4. Við verðum að bæta varnarleikinn okkar þar sem SA verður sterkara og sterkara um leið og þeir fá fleiri leikmenn til sín. Allir leikmenn SR lögðu sig fram og sýndu einbeitni.