Dags: 05.09.2002 11:41
Núna gefst félagsmönnum kostur á að auglýsa til sölu á vefnum okkar, endurgjaldslaust, gamlan íshokkíútbúnað. Ennfremur er hægt að auglýsa eftir útbúnaði á þessum Skiptimarkaði. Til þess að auglýsa skal einfaldlega senda póst á sr@skautafelag.is og lýsa þar vörunni eins vel og hægt er, ásamt því hvernig hægt er að hafa samband við viðkomandi. Nú er tækifæri á að losa sig við íshokkíbúnað sem er orðin of lítill eða að komast yfir notaðan útbúnað.