Dags: 17.09.2002 14:21
Borist hefur óstaðfest frétt þess efnis að Bjarnarmenn hafi aukið við leikmannaflóruna hjá sér. Aðeins er vitað um einn leikmann sem ætli sér að ganga í Björninn og er hann íslenskum hokkíáhugamönnum ekki ókunnur þar sem þetta er enginn annar en varnarjaxlinn Dimitri Salabanov. Þessi leikmaður spilaði með Birninum um árið þegar Björninn tapaði fyrir Akureyri í fimmta úrslitaleik liðanna árið 2001. Við SR-ingar fögnum þessum leikmanni inní íslenskt hokkí þar sem hann er verðugur andstæðingur að kljást við og á eflaust eftir að lyfta hokkíinu, hér sunnanlands allavegana, á enn hærra plan.