Dags: 23.09.2002 12:16
13 - 10 var lokaniðurstaðan í leiknum í gærkvöld. Þetta er óvenju há markatala í íshokkí. Bjarnarmenn voru þónokkuð sprækari í byrjun þessa leiks og skoruðu 3 mörk áður en SR-ingar gátu svarað fyrir sig. Voru þar Victor Höskuldsson, Jónas Breki Magnússon og Stefán Þór Kristinsson sem settu þau mörk. En það var á sjöundu mínútu þegar Hallur "TazDevil" Árnason svaraði fyrir SR með ágætu innpoti eftir hamagang fyrir framan mark Bjarnarmanna. Rétt tæpri hálfri mínútu síðar setti Ingvar Þór Jónsson annað mark SR með svipuðum hætti og það fyrra. Á elleftu mín. komst Jónas Breki aftur fyrir varnarmenn SR og tók á rás að markinu. Guðmundur Rúnarsson sá sér engan úrkost en að skutla sér á eftir Jónasi og fella hann niður. Viðar Garðarsson, dómari leiksins, dæmdi réttilega vítaskot. Sergei Zak tók vítið og skoraði hjá Gunnlaugi Yfir-Markverju SR-inga. Stuttu síðar tók hinn knái leikmaður SR Snorri Rafnsson sig til og þvældi hvern Bjarnarmanninn á fætur öðrum og setti hann síðan inn hjá Snævari sem stóð á milli stanganna áttaviltur og ringlaður. Staðan eftir fyrsta leikhluta því 4 - 3 Birninum í vil.
Í byrjum annars leikhluta setti Jónas Breki fimmta mark Bjarnarins eftir stoðsendingu frá Snorra Sigurðssyni. Á fjórðu mínútu setti Helgi Páll Þórisson fjórða mark SR með glæsilegu bakhandaskoti. Zak bætti þá við einu í safnið hjá sér stuttu síðar sem og Jónas Breki. Sr-ingar voru ekki af baki dottnir og þeir James, Hallur og Snorri settu allir eitt markið hvor. Zak og Brekinn tóku eðal þvæluspilskerfi á SR-inga og fyrir galdur komst Brekinn fram hjá öllum þeim varnarjöxlum, sem stóðu þar, og setti pökkinn inn áður en leikhlutinn var liðinn.
Í byrjun þriðja leikhluta tók Elvar "Thunder" skot að marki Bjarnarmann og pökkurinn rataði einhvernveginn inn. Ingvar Þór tók skot að marki Bjarnarmanna sem fór í skautana hjá Helga Páli sem stýrði pekkinum inn. Næstu tvö mörk átti Zak með aðstoð frá Brekanum. En ekki urðu mörkinn fleiri hjá Birninum í þessum leik. Hinsvegar settu SR-ingar í Rallý-gírinn og þeir James og Steinn settu eitt mark hvor og Elvar "Thunder" setti tvö áður en leikhlutinn var liðinn. Staðan 10 - 13 SR í vil. Það er nokkur ljóst að Bjarnarmenn eiga marga unga,spræka og snögga stráka en vantar þó örlítið kjét á beinin til að eiga við fullvaxta SR-inga.
Ekki lítur út fyrir annað en þetta verði skemmtileg og spennandi deild í vetur. Næsti leikur deildarinnar er næsta laugardal þegar SA og Björninn mætast í Skautahöllinni í Laugardal.
Fyrir þá sem vilja sjá stig leikmanna þá eru þau hér
[ Stig leikmanna ]