Fréttir

Total items: 1194

Stál í stál...

Dags: 30.09.2002 16:55


Á laugardaginn tókust á Skautafélag Akureyrar og Ísknattleiksfélagið Björninn. Í byrjun virtist sem Rússneska rakettan og Brekinn ætluðu að ganga frá þessum leik í fyrstu lotu. Eftir 1. leikhluta var staðan orðin 5 - 3 heimamönnum í vil. Fóru SA menn útaf ísnum súrir á svip en staðráðnir í því að taka á í næsta leikhluta. Í öðrum leikhluta náðu norðanmenn að minnka muninn í eitt mark og staðan orðinn 5 - 4 heimamönnum í vil. Í 3.leikhluta komu SA menn ferskari til leiks og náðu á endanum að skora 6 mörk á móti 2 hjá Bjarnarmönnum. Hefðu Bjarnarnmenn náð að halda sér á ísnum í þessum leik, þá hefðu úrslitin líklega orðið önnur.
Liðhlauparnir Daði Heimisson og Jón Trausti stóðu sig með prýði, enda hafa þeir verið svín-aldir á sunnlensku hokkíi um árabil og eru að toppa á réttum tíma, gott fyrir SA en slæmt fyrir aðra. Liðin eru greinilega að verða jöfn að styrk og gerir það deildina meira spennandi fyrir vikið og ekki leynir það sér í stúkunni þar sem áhorfendaskarinn fer stækkandi.
Leiðindaratvik átti sér þó stað í enda 3.hluta þar sem nokkrir leikmenn ákváðu að hætta spila hokkí en þess í stað að tala við hvorn annan með höndunum. Dómari leiksins, Ágúst Ásgrímsson, henti þeim sem verst létu, í kalda sturtu. Næstu helgi taka Akureyringar á móti stórjöxlunum í SR norður á Akureyri. Meir um það síðar.