Fréttir

Total items: 1194

SR-ingar spilandi í Danmörku.

Dags: 30.09.2002 17:01


Hér kemur frétt frá Danmörku, nánar tiltekið í Kóngsins Kaupmannahöfn, þar sem þeir Davíð Kristinsson og Eggert Rúnarsson eru að gera garðinn frægan.

Kl 10:00 á sunnudagsmorgni stigu leikmenn KSF og Hvidovre inn á svellið við Österbro í Kaupmannahöfn...

Leikurinn hófst líflega og leikmenn beggja liða virtust vera í góðum gír. Fljótlega náðu þó Hvidovre menn forystunni og þegar spennan var sem mest var staðan 1-3 gestunum í vil. Fór þá heldur að draga af leikmönnum KSF og endaði fyrsta lotan 2-7.

Ekki var önnur lotan til að hrópa húrra fyrir og skemst er frá því að segja að hún endaði 0-10 Hvidovre mönnum í vil. Tvær brottvísanir voru dæmdar á lið KSF og í fyrra tilvikinu var það hinn eitilharði varnarmaður Davíð Kristinsson sem brá mótherja sínum ólöglega með kylfunni.

Þegar þriðja lotan hófst var staðan svört fyrir KSF menn: 2-17 og ekkert að gera nema að reyna að hafa gaman af þessu. Endaði leikurinn 3-22 Hvidovre mönnum í vil. Ein brottvísun í þriðja hluta og var þar aftur að verki Davíð Kristinsson.

Fleiri fréttir væntanlegar.