Fréttir

Total items: 1194

Þeir bestu í heimi ........

Dags: 02.10.2002 10:02


Þá hefur tímaritið The Hockey News birt sitt árlega val á 50 bestu leikmönnum NHL deildarinnar (heimsins?). Samkvæmt mati þeirra er sænski varnarjaxlinn Nicklas Lidstrom í Detroit Redwings besti leikmaður deildarinnar og kemur það eflaust fáum á óvart ef skoðuð er frammistaða hans undanfarin ár. Hér er á ferðinni alger sigurvegari. Fast á hæla hans kemur svo annar sænskur kappi, framherjinn Peter Forsberg í Colorado Avelance, og það þrátt fyrir að hafa verið lengi frá á síðasta tímabili vegna þrálátra meiðsla. Forsberg reyndist óstöðvandi í úrslitakeppninni sl. vor og telur tímaritið að einungis meiðsli geti komið í veg fyrir að hann verði númer 1 í heiminum. Í þriðja sæti kemur svo félagi Forsbergs í Colorado, Joe Sakic, en hann var kjörinn besti leikmaðurinn síns liðs (MVP) á Ólympíuleikunum í Salt Lake. Næstu sæti á listanum skipa svo: 4) Jaromir Jagr, 5) Mario Lemieux, 6) Rob Blake, 7) Chris Pronger, 8) Paul Karya, 9) Mats Sundin og 10) Markus Naslund. Kanadamenn eiga því fimm á þessum lista, Svíar fjóra og Tékkar einn. Besti markmaðurinn er sem fyrr sá gamli, Patrick Roy hjá Colorado, en lærisveinn hans hjá Montreal Canadiens, hinn ungi José Theodore sem þurfti að þola stórskotahríð á síðasta tímabili, og hlaut þá fyrir vikið MVP titilinn í NHL, er í öðru sæti.