Dags: 04.10.2002 12:09
Núna á laugardaginn fara 3.flokkur og meistaraflokkur norður yfir heiðar og er ætlunin að takast á við SA menn þar nyðra. Nokkurt af ryði og sót-pústi var að gæta í leik SA manna í byrjun leiks þeirra við Bjarnarmenn. En það kom þó ekki að sök, þeir unnu Bjarnarmenn með 3 mörkum. Svellkaldir SR-ingar hafa æft af kappi undir stjórn Peter Bolin undanfarnar vikur. Nú er bara að vona að það skili árangri á ísnum fyrir norðan. Heyrst hefur að þjálfarinn telji sig líklegan til þess að setja sig í galla og sýna þeim norðlensku hvernig skal spila hokkí "på svenska". Þeir sem verða norður á Akureyri þessa helgi er bent á að láta sjá sig í skautahöllinni á laugardagskvöldið. Þetta verður, án vafa, mikill átakaleikur þar sem hvorugt liðið mun gefa nokkurt eftir.Áfram SR!!