Dags: 09.10.2002 16:20
Um síðustu áramót fór fram í Selkirk, Manitoba, alþjóðlegt mót í ísknattleik fyrir drengi 17 ára og yngri. Mótið var tileinkað minningu Fálkanna sem var vestur-íslenskt ísknattleikslið sem vann til gullverðlauna á Ólympíuleikunum 1920. Vestur-Íslendingum er mikið í mun að halda merki Fálkanna á lofti og ÍSÍ vildi leggja sitt af mörkum til að liðsinna þeim í því og gaf veglegan bikar til mótsins. Þetta framlag ÍSÍ vakti mikla athygli ytra og sem þakklætisvott fyrir stuðninginn gáfu skipuleggjendur mótsins ÍSÍ innrammaða verðlaunapeninga frá mótinu ásamt slegnum peningi með merki Fálkanna. Það var Eiður Guðnason, aðalræðismaður Íslands í Winnipeg, sem tók við þessari viðurkenningu og afhenti hann síðan Ellerti B. Schram, forseta ÍSÍ, viðurkenninguna nú í morgun.