Dags: 21.10.2002 12:35
Í morgun voru spilaðir 2 leikir í 4.flokki á milli SR-Panthers og Bjarnarins. Í fyrri leiknum við A-lið Bjarnarins spiluðu SR-ingar ágætlega og áttu góða spretti á móti annars sterku liði Bjarnarins. Sá leikur endaði 6:2 Birninum í vil. Ingibjörn átti bæði mörkin í þeim leik.
Í seinni leiknum var spilað við B-lið 4.flokks Bjarnarins og átti SR-ingar betri leik þar. Pökkurinn gekk oft á tíðum vel á milli manna sem skilaði fínum mörkum. Eitt mark var dæmt af þar sem einn SR-ingur var inn í markteigi þegar markið var skorað. Leikurinn endaði með sigri SR-Panthers 6:1. Þeir sem skorðu í þeim leik voru Ingibjörn með eitt, Elvar Þór með 2, Stefán Tumi með 2 mörk og Andri Þór með eitt mark.
Einnig var spilaður leikur hjá 5.flokki. Aðsóknin að leikjunum var góð.