Fréttir

Total items: 1194

Sama hvað norðanvindar blása

Dags: 30.10.2002 13:39


Leikur SR við SA s.l. laugardagskvöldið í meistaraflokki karla, var einn besti leikur meistaraflokksins í manna minnum hjá SR. Sumir vilja gerast svo djarfir að segja að þetta hafi verið besti leikur hjá SR frá upphafi. En hvað sem stórum orðum líður er nokkuð ljóst að margir SR-ingar, sem sátu í stúkunni og horfðu á leikinn, voru sammála því að úrslit leiksins hafi ekki endilega enduspeglað gang leiksins. Margir telja að það hafi bara munað þessu eina, meinta rangstöðumarki sem SA skoraði í leiknum. En hvað um það, það sem er búið og gert er búið og gert, ekki þýðir að velta sér uppúr því.
Um næstu helgi verða væntanlega mikil átök á milli SR og Bjarnarins, er þessi lið mætast á laugardagskvöldið. SR-ingar eru staðráðnir í að sýna að það hafi ekki verið nein heppni að hafa náð að spila svona vel einsog á s.l. laugardagskvöld. Þeir eru staðráðnir í að sýna sitt rétta andlit, sem hefur verið í hálfgerðum felum undanfarin misseri. Já, það verður tekið á því... sama hvað norðanvindar blása.