Dags: 01.11.2002 14:50
.. meistaraflokkinn. Mikið rétt, Björninn er búinn að bæta í leikmannaflóruna hjá sér en þeir eru búnir að lokka til sín kanadískan markmann. Ekki vanþörf á þar sem aðalmarkvörður meistaraflokks, Snævar, er að fara í veikindafrí og Rósar er enn að finna sig á milli stanganna. Sem sagt, nú þarf sóknin hjá SR að fara að hitta markið og skora.
Þessi spræki markmaður heitir Bradley Willeston og ku vera 23 ára gamall. Ekki er vitað með vissu hvaðan hann kemur, nema að hann kemur frá hokkí-nafla heimsins Kanada. Gaman verður að sjá hvernig hann ber sig á móti okkur SR-ingum og þeim norðlensku í Íslandsmótinu.