Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn: 4 - 0

Dags: 04.11.2002 09:51


S.l. laugardagskvöld sýndi SR það og sannaði að leikurinn á móti SA helgina áður, var enginn lukka. Ljóst var fyrir leikinn að SR-ingar þyrftu að skjóta markvisst á markið ef takast átti að skora hjá þeim kanadíska í marki Bjarnarins. SR-ingar spiluðu stífa vörn sem skilaði sér vel. Bjarnarmenn sáu varla sáu markið þar sem Gulli yfirmarkverja stóð grimmur á svip og hirti allt. Keyrt var á fullum þremur línum hjá SR og skilaði það sér vel í leikinn. SR-ingar voru mun ferskari og réðu lögum og lofum í leiknum allt frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Mikill hamagangur var á köflum í kringum markteigana og í eitt skiptið fékk einn Bjarnarmannanna að fara í kalda sturtu eftir slagsmál. Ein “súpertækling” var í leiknum þegar þeir Snorri Sigurðsson(BJ) og Elvar “Thunder” Jónsteinsson skullu saman með þeim afleiðingum að Elvar þaut upp í loft með tilþrifum og heljarstökki og lenti á ísnum með andlitið. Eitthvað laskaðist Snorri við þessa ákeyrslu við Vinstri hraðlestina, því ekki spilaði hann meira í leiknum eftir það. Það er kannski ósanngjarn að nefna e-a sérstaka leikmenn er skópu sigurinn því allt liðið stóð sig frábærlega vel, en án efa verður þó að nefna þá Snorra Rafnsson og Gulla markverju. Snorri náði þrennu í þessum leik, allt stórglæsileg mörk, og Gulli náði “shut-out”, þ.e. hélt markinu hreinu, sem er jú mikið afrek fyrir sig í íshokkí en þetta er í fyrsta skiptið í deildinni í vetur sem það gerist.
SR-ingar hafa nú kvatt niður þær efasemdarraddir að frammistaðan gegn SA helgina áður hafi verið heppni. Reyndar berast þær óstaðfestu fréttir með norðanvindinum að SA menn í skelfingu sinni, hafi á síðustu stundu tekið inn enn einn útlendinginn í sínar raðir. Ekki breytir það miklu hjá SR þar sem sá mannskapur sem fyrir er, er fullfær um að takast á við “Víkingana” í norðri.
Meira um leikinn síðar... þegar leikskýrsla skilar sér í hús...