Fréttir

Total items: 1194

Norðanmenn koma suður

Dags: 08.11.2002 17:49


Næstkomandi laugardag mun SA takast á við Skautafélagið Björninn Skautahöllinni í Laugardal í Íslandsmóti meistaraflokks karla. Norðanmenn koma með fullt hús stiga þennan leik en Björninn er í harðri baráttu við að ná stigum.
SA-menn koma líklega ögn varari um sig en í síðasta leik þar sem þeir voru nærri búnir að tapa fyrir okkur bláklæddu þungavigtarhokkímönnum, SR. Björninn er búinn að nota vikuna til að liðka til og hnoða sinn nýja markmann inní liðið, en hann átti ekki sinn besta leik um síðustu helgi. Ekki segir sá leikur alla söguna um kappann, en gaman verður að sjá hvernig hann stendur sig á móti þeim norðanmönnum sem koma með norðlenskt fjallaloft og KEA-skyr í æðum. Markamaskínurnar Breki og Zak hafa verið að æfa skot sín reglulega s.l. viku, og skilja ennþá ekkert í því afhverju þeim tókst ekki að skora um síðustu helgi.
Þetta verður vonandi skemmtilegur leikur á að horfa en fyrir þá sem ætla sér á leikinn þá byrjar hann stundvíslega kl.20:00 í Skautahöllinni.
Leikur hjá 3.flokki verður á undan eða kl.18:15.
Sjáumst í höllinni!!!