Fréttir

Total items: 1194

Brynjumótið

Dags: 12.11.2002 09:04


Um næstu helgi fer fram hið árlega Brynjumót á Akureyri. Undirbúningi er að mestu lokið en allt bendir til þess að metþátttaka verði hjá félaginu að þessu sinni. Endurspeglar þátttakan þá miklu fjölgun sem hefur orðið í félaginu í haust. Ennfremur er ánægjulegt að sjá hversu margir foreldrar sjá sér fært að koma með norður. Þar sem hópurinn er stór þarf gott skipulag til að halda utan um allan hópinn, enda koma margir foreldrar að þessari vinnu.