Dags: 25.11.2002 11:35
Já lesandi góður, þú ert ekki að sjá gamla frétt. Í kvöld öttu kappi sunnanveldin tvö SR og Björninn í Íslandsmóti karla. Bæði liðin mættu sterk til leiks og strax í byrjun var ljóst að hvorugt liðið var tilbúið til að gefa eftir. Þegar 12 mín. voru liðnar af fyrsta leikhluta skoraði hinn knái leikmaður Snorri Rafnsson gullfallegt mark, stöngin inn. Við markið juku Bjarnarmenn enn frekar baráttuna, en allt kom fyrir ekki, SR var búið að reisa múrvegg á milli bláu línanna. Auk þess varði Gulli yfirmarkverja SR sem óður væri, en Bjarnarmenn áttu margar góðar sóknir en inn vildi pökkurinn ekki. Fyrsta lotan endaði því 1 – 0 fyrir SR.
Í annarri lotu voru SR-ingar búnir að ná mesta skrekknum úr sér og komnir vel í gang. Stíf vörn SR skilaði sér mjög vel og komust Bjarnarmenn, á tímabili, varla út úr sínu eigin varnarsvæði. Þegar tæplega 2 mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta beitti Bergmundur Elvarsson kylfunni sinni ótæpilega í fætur SR-ings með þeim afleiðingum að hann var rekinn útaf í 2 mínútur. SR-ingar einum fleiri í þessar 2 mínútur.... eða hvað? Guðmundi Rúnarssyni fannst þetta ekki nógu spennandi en hann náði þeim árangri að vera fyrsti SR-ingurinn í leiknum til að heimsækja boxið. Önnur lotan var mikið taugastríð á milli liðanna, mikil barátta og oft var tæpt á því að Bjarnarmenn næðu að jafna leikinn.Gulli yfirmarkverja var hins vegar fyrir löngu búin að múra uppí markið. Sama hvernig skotin dundu, ekkert vildi inn! Þó að Gulli lægi flatur þvert fyrir framan markið, hrundu skotin af honum einsog galdrar réðu ferðinni. Þegar tæplega ein mínúta var eftir af annarri lotu, fór Ísak Ómarsson í boxið fyrir Bjarnarmenn og sat þar það sem eftir var annarrar lotu. Í byrjun þriðju lotu kom Bjarnmenn dýrvitlausir til leiks og greinilega búnir að ákveða að leggja allt í sölurnar. Eitthvað hefur Guðmundi Rúnarssyni þótt sóknin hjá Birninum vera orðin of aðgangshörð því hann fékk að heimsækja boxið enn og aftur eftir að hafa haldið einum þeirra of lengi. Bjarnarmönnum tókst ekki að nýta sér liðsmuninn í þetta skiptið því að stuttu síðar fór Snorri Sigurðsson einnig í boxið og jafnaði þar með þann liðsmun. SR-ingar voru snöggir að nýta sér þetta færi sem myndast hafði þarna og nokkrum sekúndum síðar náði Peter Bolin að auka muninn með glæsilegu bakhandarskoti eftir stórglæsilega bakhandarstoðsendingu frá Súper-Diddó Óskarssyni og James Devine. Staðan orðin 2 – 0 fyrir SR og Bjarnarmenn brotnir á bak aftur. Stuttu síðar urðu SR-ingar þrír á ísnum þegar Guðmundur Björgvinsson heimsótti félaga sinn í boxinu. Það entist ekki nema í 2 sekúndur því að þá var Guðmundi Rúnarssyni hleypt aftur inná ísinn. Þegar tæpar 3 mínútur voru eftir af lotunni náði Helgi Páll Þórisson að skora með gríðar-bakhandarskoti eftir glæsilega stoðsendingu frá James Devine. Sumir segja að þetta bakhandarskot hafi tekið tímana tvenna í framkvæmd, en hvað sem því líður þá fór pökkurinn inn, fram hjá niðurbrotnum markmanni Bjarnarmanna. SR-ingar voru hvergi hættir og héldu sínu striki og spiluðu stífa vörn á móti þeim Breka, Zak og félögum. Þegar þriðju og síðustu lotunni var nærri lokið náði fyrirliðinn, Ingvar Þór, að senda gullfallega bakhandarsendingu á Peter Bolin sem skilaði bekkinum í netið. Leiktíminn rann út og lokastaðan 4 – 0....aftur! Meistaraflokkur SR hefur nú unnið 3 leiki í röð og sjálfstraustið styrkist með hverjum leiknum. Það er deginum ljósara að andstæðingarnir þurfa að athuga sín mál vel áður en þeir mæta SR-fylkingunni. SR situr nú í sama sæti og SA með 8 stig. Við upphaf 4. umferðar getur því allt gerst en Bjarnarmenn fara norður yfir heiðar um næstu helgi. Ekki er gott að segja hvernig sá leikur á eftir að fara þar sem Björninn er með einn sigur á SA í farteskinu og SA enn í sárum eftir að SR-fylkingin bar af þeim sigurorð um síðstu helgi. Deildin er því orðin nánast óþolandi spennandi.
Refsimínútur
SR: 6.mínútur
Björninn: 8.mínútur
Aðaldómari: Magnús Einar Finnsson.
Áfram SR!!