Dags: 25.11.2002 14:18
Á undan hinum stórskemmtilega leik karlanna á sunnudagskvöldið fór fram leikur SR gegn Birninum. Það hefur verið deginum ljósara að 3. fl. SR er mjög sterkur og ávallt haft undirtökin í öllum leikjum sínum í vetur. Það var engin breyting þar á í þessum leik. Fyrsta mark leiksins skoraði Þorsteinn Björnsson fyrir SR en hann vann "face-off" á miðju, sólaði tvo Bjarnarmenn og skaut föstu úlnliðsskoti af nokkru færi sem rataði inn. Eftir þetta mark sóttu liðin stíft án þess að skapa sér mjög góð færi. Bjarnarmenn náðu þó að jafna eftir að hafa komist inn í sendingu varnarmanns SR. SR-ingar tóku þá vel við sér og hver sóknin þeirra skóp dauðafæri, en inn vildi pökkurinn ekki. Það var síðan Gauti Þormóðsson sem braut ísinn; sótti pökkinn inná sitt varnarsvæði og óð upp völlinn fram hjá hverjum Bjarnarmanninum á fætur öðrum og sendi pökkinn svo snyrtilega fram hjá markmanni Bjarnarins. Staðan 2-1. Í kjölfarið fengu SR-ingar aftur nokkur dauðafæri án þess að njóta góðs af, eða þar til Gauti endurtók leikinn með öðru glæsilegu marki þar sem aðdragandinn svipaði til fyrra marks hans, þ.e. frá enda í enda og mark! Staðan 3-1 og nánast formsatriði að klára leikinn fyrir SR-inga. Þeir virtust hafa leikinn í hendi sér og varnarmenn þeirra og Ingi markvörður sáu um að lítil hætta skapaðist fyrir framan mark þeirra. Með þessum sigri og frammistöðu þeirra í vetur er augljóst að nánasta framtíð SR-inga er björt, enda hafa nú þegar þrír leikmenn úr þessum flokki fengið að spreyta sig með meistaraflokki í vetur með góðum árangri. Áfram SR!