Dags: 27.11.2002 17:08
Borist hafa fréttir eftir ákveðunum boðleiðum að eylítil hokkí-menning sé að skapast út á landi, nánar tiltekið í Vestmannaeyjum. Nokkrir öflugir drengir hafa unnið þar hörðum höndum við að koma upp aðstöðu til hokkí-iðkunar. Sú vinna bar árangur nú á dögunum þegar drengirnir fengu úthlutað æfingasvæði til þess að spila hokkí, þ.e. steethokkí, innandyra. Áhuginn mun vera mikill þar í eyjum og án efa mun þar rísa íshokkísvæði fyrr en seinna, þar sem þessi áhugi fær að blómstra jafnt á veturna sem á sumrin.
Gaman verður að sjá hvernig málin þróast núna á næstu árum ef þetta er þróunin sem er að eiga sér stað. Einnig hefur heyrst af hokkí-menningu á Eyrarbakka og Akranesi, svo einhverjir staðir séu nefndir. Hokkí mun án efa verða það sport sem mun tröllríða landinu innan fárra ára og þá er annaðhvort að vera með eða færa sig frá!!!