Dags: 02.12.2002 08:55
Eitthvað er farið að síga undan fæti hjá núverandi Íslandsmeisturum karla því að í gærkvöldi töpuðu þeir sínum þriðja leik í röð á Íslandsmótinu.
Ef marka má fréttir af þessu leik náðu þeir Jónas Breki og Brynjar að stimpla sig inn strax í byrjun leiksins. Rétt í lok fyrsta leikhluta náði þó Sigurður Sigurðarson að svara fyrir heimamenn. Í öðrum leikhluta náðu Bjarnarmenn að skora 3 mörk á heimamenn án þess að þeir kæmu nokkrum vörnum við. Eitthvað var þungt yfir heimamönnum þegar stigið var inní þriðja leikhluta, kannski að það hafi verið stigataflan sem blasti við þeim og galaði 5 - 1 Birninum í vil! Eftir að hafa verið teknir og bakaðir í fyrstu tveimur leikhlutum tóku heimamenn við sér og náðu þeir Siggi og Kenny að skora eitt markið hvort, og Daði fylgdi þeim eftir með einu marki í lok leikhlutans. Þrátt fyrir mikil átök og hasar undir lok leiksins náðu heimamenn ekki að jafna.
Lokastaðan 5 - 4 Birninum í vil.
Heyrst hefur að Akureyringar flaggi nú í hálfa stöng.
Íslandsmeistaramótið er orðið gífurlega spennandi og fólk farið að flykkjast á milli landsfjórðunga til þess að geta fylgst með þessum gríðarlega spennandi leikjum.
Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Skautafélagi Akureyrar um næstu helgi og þá á ekki nokkur heilvita maður að láta þann leik fara framhjá sér!!
Áfram SR!!