Dags: 10.12.2002 09:40
Nú heyrast þær raddir fjöllunum hærri að þeir Jón Trausti og Daði hafa horfið sporlaust frá SA. Eitthvað hefur þeim kumpánum leiðst og hafa þeir ákveðið að snúa til síns heima, suður á bóginn, því heima er jú best. Ekki hefur það komið að sök fyrir SA þar sem þeir Denni og Héðinn hafa fyllt uppí það gat sem þeir hafa skilið eftir.
Ef það ætti að tala um einhvern Bermúda-þríhyrning,ferhyrning eða sexkant þá er hann staðsettur norður í landi því að þeir Elvar, Jónas, Ágúst, Heiðar Ingi, Diddó og Siggi Sig hurfu þaðan allir með dulafullum hætti. Hefur enginn þeira sést þar aftur, nema sá síðastnefndi sem fannst undir einni þúfu norður í landi, kaldur, sár og þjakaður eftir stranga vist í suðri.