Dags: 16.12.2002 09:30
SR-ingar eru komnir aftur í toppslaginn eftir sigur á Bjarnarmönnum 5 - 4 í æsispennandi leik í gærkvöldi.
Bjarnarmenn komu töluvert ákveðnari til leiks heldur en þeir bláklæddu og á upphituninni mátti halda að þeir bláklæddu væru búnir að gleyma báðum fótum suður í sveit. Bjarnarmenn komust í 3-0 áður en Peter Bolin náði að minnka muninn með dúndurskoti fá bláu línunni.
Í öðrum leikhluta var annað uppá teningnum hjá SR og þeir farnir að spila einsog menn... eða hér um bil. Í þessum leikhluta náðu Bjarnarmenn að skora eitt mark á móti einu hjá SR.
Í þriðja leikhluta settu SR-ingar í 5. gír og keyrðu áfram af fullum krafti þar sem hvergi var gefið eftir. Gerðar voru línubreytingar og sú byltingarkendasta að setja Jónas Rafn (varnarjaxl) í framlínuna með þeim Ingvari og Elvari. Þessar breytingar skiluðu sér vel þar sem SR-ingar náðu að jafna og komast marki yfir, 5-4. SR-ingar stóðu því uppi sem sigurvegarar en tæpara mátti það ekki standa. Meira um leikinn síðar þegar leikskýrsla er tilbúin.