Dags: 30.12.2002 09:41
Strákarnir okkar í U-20 landsliðinu náðu jafntefli við Spánverja í dag í æsispennandi leik. Fyrsta mark leiksins kom á 22.mínútu þegar Francisco Jose Hernandes sem skoraði. Aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Daði Örn Heimisson leikinn. Á 28. mínútu skoraði norðanmaðurinn Jón Gíslason annað mark Íslendinga úr "powerplay" með aðstoð frá Ragnari Óskarssyni. Desiderio Perez jafnaði svo leikinn, einnig úr "powerplay", þegar tæplega 10 mínútur voru eftir af öðrum leikhluta.
Í þriðja leikhluta náðu Spánverjar að komast yfir með "powerplay" marki og var þar að verki Gorka Echevarria. Tæpum 2 mínútum jók Gorka Echevarria muninn fyrir Spán í 4-2 þegar hann skoraði annað mark sitt. Brynjar Þórðarson skoraði þriðja mark Íslands þegar næstum 8 mínútur voru til leiksloka og staðn því 4-3 fyrir Spánverja. Þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum tóku þjálfarar Íslands markmanninn Jón Trausta útaf og settu annan sóknarmann inn og það skilaði árangri er Snorri Rafnsson skoraði þegar 3 sekúndur voru eftir af leiknum.
Ísland er því komið með eitt stig í sarpinn. Verður þetta að teljast góður árangur hjá strákunum en þeirra bíða erfiðir leikir í þessum sterka riðli.
Eitthvað þarf líka að stilla skapið í strákunum þar sem þeir voru með alls 41 mínútu í boxinu (þar af einn sturtudómur) á móti 8 mínútum hjá Spáni.
Næsti leikur hjá okkar mönnum er á morgun við Hollendinga.
Áfram Ísland!!