Fréttir

Total items: 1194

Júgóslavía - Ísland 8:5

Dags: 03.01.2003 14:18


Í kvöld spilaði íslenska U-20 landsliðið við Júgósalava í Novi Sad í Júgóslavíu.
Ef marka má leikskýrsluna á netinu skoruðu Íslendingar fyrsta mark leiksins á áttundu mínútu og var þar Daði Örn Heimirsson að verki með aðstoð frá Ragnari Óskarssyni.
Dejan BUGARSKI jafnaði metin þegar rúmlega 13 mínútur voru liðnar af leiknum og var hann einnig á ferðinni þegar Júgóslavar náðu yfirhöndinni á 17. mínútu. Jón Gíslason jafnaði leikinn þegar rúmlega 2 mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta og staðan því 2 - 2. Annar leikhluti endaði líka 2-2 og staðan var því 4 - 4.
Eitthvað virðast leikmenn hafa tapað einbeitingunni í 3. hluta sem endaði 4 - 1 fyrir Júgóslava og leikurinn því 8 - 5 fyrir Júgóslava.
Næsti leikur er við Mexikóa og verða strákarnir að vinna þann leik til þess að halda sér í deildinni.
Áfram Ísland