Dags: 03.01.2003 14:22
Hinn 26 ára gamli Sigurður Sveinn Sigurðarson var valinn íshokkímaður ársins 2002.
Sigurður er búinn að vera stoð og stytta Skautafélags Akureyrar síðan hann var lítill strákhnokki sem gekk um innbæinn vopnaður hokkíkylfu og skautum.
Í dag er hann einn af stigahæstu mönnum deildarinnar ásamt þeim Jónasi Breka og Sergei Zak.
Sigurður hefur einnig verið liðtækur í starfsemi landsliðanna og þess má geta að hann eyddi áramótunum í faðmi unglingalandsliðsins í fyrrverandi Júgóslavíu. Hann hefur einnig verið öflugur í karlalandsliðinu.
Það sem er kannski merkilegast við þennan dreng er að hann hefur aldrei tapað Íslandsmeistaratitli!
Við SR-ingar þekkjum Sigurð vel þar sem hann átti sinn þátt í Íslandsmeistaratitlum SR bæði 1999 og 2000.
Við hjá SR óskum honum til hamingju með titilinn!