Dags: 06.01.2003 08:38
Svo virðist sem skrákarnir okkar í Júgó hafi skráð sig í bækur IIHF með fleirum en einum hætti. Á IIHF-vefnum iihf.com kemur margt skemmtilegt t.d. í ljós:
- Að Jón Gíslason(SA) er í 12. sæti yfir stigahæstu menn í mótinu og í 4. sæti yfir þá markahæstu. Einnig er Jón með flest mörk skoruð úr "powerplay".
Að Stefán Hrafnsson(SA) er í 7.sæti yfir þá sem eru með flestar stoðsendinar í mótinu.
- Að Ragnar Óskarsson(BJ) er í 5. sæti yfir stigahæstu varnarmenn með 5 stig en á þessum lista erum við Íslendingar með alls 4 leikmenn. Næst á eftir Ragnari eru þeir Guðmundur Ingólfsson(BJ) með 2 stig, Guðmundur Björgvinsson(SR) með 1 stig og Viktor Höskuldsson(BJ) með 1 stig.
Einsog áður hefur komið fram var Daði Örn Heimisson með flestar brottrekstrarmínútur eða alls 51. Snorri Rafnsson(SR) var víst sá eini sem skoraði jöfnunarmark á mótinu er hann jafnaði 4 - 4 á móti Spáni. Þetta mark kom þegar aðeins 3 sekúndur voru eftir af leiknum.
Jón Trausti (SR) er í 6. sæti yfir bestu markmenn mótsins með 83,3% varin skot, en þess má geta að hann fékk á sig langflest skotin eða alls 279.
Viðunandi árangur hjá okkar strákum og vonandi gengur okkur ennbetur næst!