Fréttir

Total items: 1194

Björninn - SA um helgina.

Dags: 16.01.2003 14:13


Um helgina mætast Björninn og SA í Íslandsmóti karla í íshokkí. Óhætt er að segja að leikmenn verða að vera búnir að brenna af sér jólasteikina, jólaölið, konfektið og ísinn, sem hefur sest framan á menn í kílóavís, áður en þeir stíga inná ísinn. Norðanmenn eru hvergi bangnir og ljóst að þeir ætla ekki að láta Björninn vinna sig ... allavegana ekki í bráð. Urr, marr og fagnaðaröskur heyrðust úr Bjarnarfylgsninu þegar týndi sonurinn Daði Örn Heimisson rataði til síns heima, eftir stutta vist í norðri. Sögur herma að hann ætli sér að taka kylfu í hönd í leiknum á móti SA um helgina.... seljum það ekki dýrara. En Bjarnarmenn hafa verið að styrkjast dag frá degi og rétt er að minna á að við SR-ingar lágum næstum því fyrir þeim í síðasta leik fyrir jól.
Norðanmenn koma með Skautamann ársins, með útþaninn kassann, í broddi fylkingar og er það beinlínis skylda hvers áhugamanns um íshokkí að koma og horfa á þennan leik. Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að hefja meistaraflokksleikinn klukkan 18:00, en ekki klukkan 20:00 einsog venja hefur verið hingað til.
Þetta sama kvöld verður einnig kvennaflokksleikur á milli þessara liða og hefst hann kl.20:45.
Áfram SR!!