Fréttir

Total items: 1194

Óskemmtilegur leikur Björninn - SA!!

Dags: 20.01.2003 09:46


Það er ekki ofsögum sagt að leikur Bjarnarins við SA í Íslandsmóti karla sl. laugardagskvöld hafi verið einn sá leiðinlegasti sem spilaður hefur verið í vetur.
Eitthvað hefur jólafitan setið í mönnum og þá sérstaklega í höfðinu á þeim. SA réð lögum og lofum frá fyrsta leikhluta til þess síðasta og Bjarnarmenn sáu varla til sólar í þessum leik ef undan eru skildar fyrri hluti fyrsta leikhluta. Hvert markið á fætur öðru leit dagsins ljós hjá SA sem oftar en ekki mátti þakka Kenny Corp, sem fékk að leika sér einsog barn í sandkassa inní varnarsvæði Bjarnarins.
Um miðbik síðustu lotunnar leystist leikurinn upp í handalögmál milli nokkurra leikmanna beggja liða. Uppskáru allnokkrir refsivist í boxið og sturtuferð fyrir hálfvitaganginn.
Verður þetta að teljast ömurlegt fyrir bæði liðin og íþróttinni varla til framdráttar, en fram til þessa hefur deildarkeppnin verið blessunarlega laus atvik sem þessi. Leikmenn og forráðamenn liðanna verða a.m.k. að hafa í huga að á þessa leiki kemur mikið af börnum sem eru m.a. að stíga sín fyrstu spor í íþróttinni. Með þeim eru foreldrar sem þekkja lítið til íshokkí og uppákomur sem þessar eru varla til þess að auka hróður íþróttarinnar. Auk þess er beinlínis verið að senda röng og frumstæð skilaboð til þessara barna.
Næsti leikur verður á milli SR og SA 25.jan og verður hann norður á Akureyri.