Fréttir

Total items: 1194

Ný ferðatilhögun U-18

Dags: 05.02.2003 08:54


Sú ákvörðun var tekin í morgun að breyta ferðatilhögun U-18 landsliðsins, í þessum skrifuðum orðum er hópurinn að stíga um borð í rútu sem mun flytja þá til Lublijana höfuðborgar Slóveníu. Þetta er um 150 kílómetra akstur frá Trieste. Þar munu þeir taka flug til Sarajevo klukkan 14:00 í dag. Flugtíminn þarna á milli er rétt rúmar 50 mínútur. Hópurinn er sprækur þrátt fyrir alla biðina á flugvellinum í Trieste í gær og biður fyrir kveðjur heim.
Áfram Ísland