Fréttir

Total items: 1194

Leikir U-18

Dags: 05.02.2003 18:02


Landslið Ísland í íshokkí skipað leikmönnum yngri en 18 ára kom til Sarajevó í Bosníu Herzegóvínu. Þar mun liðið taka þátt í 3. deild heimsmeistarakeppninnar og etja kappi við lið heimamanna auk Ísraela og Tyrkja.

Keppnin stendur yfir dagana 6. - 9. febrúar og eiga Íslendingar opnunarleikinn á morgun gegn Tyrkjum. Leikirnir fara fram í Ólympíuhöllinni í Sarajevó sem nýlega hefur verið endurreist eftir að hafa verið nánast jöfnuð við jörðu í stríðinu á síðasta áratug.

Dagskrá mótsins er sem hér segir:

Dagsetning/tími Nr Arena
06.02.2003/ 16:30 1 ISL - TUR Olympic Hall
06.02.2003/ 19:30 2 ISR - BIH Olympic Hall
08.02.2003/ 16:30 3 ISR - ISL Olympic Hall
08.02.2003/ 19:30 4 TUR - BIH Olympic Hall
09.02.2003/ 16:30 5 TUR - ISR Olympic Hall
09.02.2003/ 19:30 6 BIH - ISL Olympic Hall


Erfitt er spá um möguleika íslenska liðsins þessarri keppni. Ísland tapaði fyrir Tyrkjum í þessum aldursflokki í síðustu viðureign liðanna fyrir tveimur árum en á góðum degi getur allt gerst. Gestgjafarnir eru víst ekki með mjög sterkt lið enda standa þeir í miklu endurreisnarstarfi um þessar mundir og misstu hátt í heilan áratug úr.

Ísraelar eru svo óskrifað blað því það er ekki einu sinni lið í Ísrael og að öllum líkindum ekkert skautasvell - heldur er um að ræða leikmenn með tvöfalt ríkisfang sem koma flestir frá Norður-Ameríku og Rússlandi.

Hægt er að fylgjast með leikjunum beint á heimasíðu Alþjóða íshokkísambandssins (IIHF) www.iihf.com