Dags: 06.02.2003 19:51
Nú fyrir stundu lauk viðureign Íslands og Tyrklands, landsliðum skipuðum leikmönnum 18 ára og yngri.
Ísland fór með sigur 5 mörk gegn 2. Nokkur taugaveiklun var í okkar mönnum í fyrsta leikhluta var jafnræði með liðum, honum lauk 2-2, þegar komið var í annan leikhluta voru okkar menn orðnir heitir og stjórnuðu þeir leiknum það sem eftir lifði. Annan leikhluta unnu þeir 2-0 og þann þriðja 1-0, 5-2 sigur Íslands var í höfn en fyrir leikinn voru Tyrkir álitnir sterkari.
Mörk Íslands skoruðu:
Birgir Hansen 1
Viktor Höskuldsson 1
Einar Valentine 1
Gauti Þormóðsson 2
Nánari upplýsingar ættu að birtast á vef IIHF síðar í kvöld.
Áfram Ísland.