Dags: 10.02.2003 17:49
Drengirnir okkar í U-18 landsliðinu gera það ekki endasleppt. Ragnar Óskarsson fyrirliði var valinn besti leikmaður Íslands (tilnefndur af þjálfurum), Birgir Jakob Hansen var valinn besti sóknarmaður mótsins (valið af mótsstjórn) og Gauti Þormóðsson besti leikmaður mótsins (valið af mótsstjórn). Allir fengu þeir sérstaka viðurkenningu frá Alþjóða Íshokkísambandinu IIHF fyrir frammistöðuna. Við SRingar óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur. Við erum að sjálfsögðu sérstaklega hreykin af frammistöðu Gauta en þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur nýtur þess heiðurs að vera valinn besti leikmaður mótsins.