Dags: 17.02.2003 12:59
Um helgina áttust við tvö vængbrotin lið í Íslandsmeistaramótinu í íshokkí karla.
Annað liðið, Björninn, var þó sýnu vængbrotnara en lykilleikmenn þess voru að taka út leikbann frá síðustu viðureign þeirra og Sergei þjálfari á keppnisferðalagi með yngri flokk. Var fyrirfram búist að þetta mundi verða einstefna SA. Að vanda var Kenny Corp atkvæðamestur í liði SA með 6 stig en fast á eftir kom hinn nýbakaði eiginmaður og húsbóndi á sínu heimili (!), Sigurður Sveinn, með 5 stig.
Daði Heimisson var atkvæðamestur í liði Bjarnarins með öll þrjú mörk Bjarnarins.
Leikurinn endaði 13-3 fyrir SA og ekkert meira um það að segja.