Fréttir

Total items: 1194

SR - SA 1:3....

Dags: 25.02.2003 09:29


Á laugardagskvöldið áttust við SR og SA í ágætis leik í síðasta leik undankeppninnar í meistaraflokki karla í íshokkí. Bæði lið komu ákveðin til leiks og voru staðráðin í því að gefa ekkert eftir. Eftir mikinn barning fyrir framan mark SR náði Issak Hudson að skora með ágætu skoti rétt innan við bláu línuna.
Stuttu síðar skoraði Kenny Corp hjá Jóni Trausta sem nýverið fékk aftur leikheimild til að spila með sínu gamla félagi. SR-ingar náðu að minnka muninn þegar Helgi Páll Þórisson(4) átti skot að marki SA sem Árni Valdi Bernhöft(9) fylgdi eftir og stýrði inn.
Í annarri lotu gaf hvorugur aðilinn eftir og þrátt fyrir mörg góð marktækifæri SR náðu þeir ekki að nýta sér sér þau. Í þriðju lotu var heppnin ekki með SR-ingum því inn vildi pökkurinn vildi ekki þrátt fyrir mörg galopin færi. Kenny Corp náði síðan að plata varnarmenn SR-inga fyrir aftan mark þeirra og skora í galopið markið með "wrap-around". Þetta reyndist síðasta mark leiksins sem endaði því 3-1 SA í vil.
Brottvísanir
SR:20
SA:14

Dómari
Snorri G Sigurðsson