Dags: 27.02.2003 09:00
Í fyrrakvöld áttust við SR og SA í fyrsta úrslitaleik Íslandsmóts karla í íshokkí. SR-ingar komu ákveðnir til leiks enda Jónas Rafn Stefánsson(5) SR-ingum yfir strax í byrjun leiks. Eftir mikla baráttu náði Kenny Corp að jafna leikinn fyrir SA á 14 mínútu og stuttu síðar að koma SA yfir. Ekki voru fleiri mörk skoruð í þessari lotu.
Sigurður Sigurðsson og Stefán Hrafnsson juku enn á forskot SA með sitthvoru markinu án þess að SR-ingar næðu að svara fyrir sig.
Í byrjun þriðju lotu var sett á fulla ferð áfram og Peter Bolin(2) náði að minnka muninn fyrir SR með góðu marki strax í byrjun lotunnar, og staðan því 4 - 2 fyrir SA.
Stefán Hrafnsson bætti þó enn í fyrir heimamenn um mínútu síðar. Ingvar Þór Jónsson(20) lagaði aftur stöðuna fyrir SR rétt undir lok leiksins. Staðan í úrslitum er því SR:0 - SA:1.
Mikil harka var í leiknum og tekist vel á.
Elvar Jónsteinsson(12) varð fyrir því óhappi að skerast á hendi eftir samstuð við Sigurð Sigurðsson(SA) og er nokkuð víst að hann verður ekki með í öðrum leik úrslitakeppninnar sem hefst í kvöld kl.20:00. Ennfremur meiddist Gauti Þormóðsson á öxl og er óvíst hvort hann getur snúið til baka í leikinn í kvöld.
Það liggur ljóst fyrir að SR-ingar verða tilbúnir fyrir leikinn í kvöld enda áttu þeir nokkuð góðan leik fyrir norðan.
Allir félagsmenn SR eru hvattir til að koma í höllina og hvetja sína menn áfram.
Áfram SR!!