Fréttir

Total items: 1194

A - landsliðsæfingabúðir á Akureyri.

Dags: 13.03.2003 09:24


Um helgina verða landsliðsæfingabúðir fyrir A-landslið karla í íshokkí norður á Akureyri. Mikið verður um að vera þar nyrðra því tvö gulldrengjalið frá hinni stóru Ameríku eru væntanleg til Akureyrar þessa sömu helgi.
Eitthvað hefur fækkað í landsliðshópunum þar sem Elvar Jónsteinsson(SR) verður ekki með en hann hefur enn ekki jafnað sig af handaráverkum eftir ákeyrslu við ónefnda Massey Ferguson dráttarvél númer 13 norður í landi í úrslitakeppninni nýverið. Ennfremur er óljóst hvort Árni Bergþórsson geti gefið kost á sér þetta árið og varnarjaxlarnir Jónas Rafn(SR) og Stefán Tómasson(SWE) sökum tíma- og æfingaleysis.
Hópurinn mun freista þess að ná fræknum árangri á erlendri grundu þar sem þeir yngri hafa þegar gefið tóninn er þeir unnu góðan sigur um daginn í Sarajevó.
Fyrsta æfing verður kl.21:15 á föstudagskvöldið og síðan strax aftur næsta morgunn.
Síðan er ætlunin að spila við þessa eldirmenn frá USA seinna á laugardeginum.
Áfram Ísland