Dags: 20.03.2003 21:56
Nú á dögunum kláruðu þeir Peter Bolin og Patrick Flynn að velja endanlegan hóp af leikmönnum sem fer utan til Búlgaríu núna á sunnudagsmorguninn.
Nokkarar mannabreytingar hafa orðið frá því að fyrsti landsliðshópurinn var valinn og hafa menn dottið út vegna meiðsla og annara óútskýranlegra orsaka.
Alls fara um 18 leikmenn út til Búlgaríu og eru þeir þessir:
Markmenn
Gunnlaugur Björnsson SR
Birgir Örn Sveinsson SA
Varnarmenn
Björn Már Jakobsson SA
Birkir Árnason SA
Ágúst Ásgrímsson SR
Guðmundur Rúnarsson SR
Guðmundur Björgvinsson SR
Ingvar Þór Jónsson SR
Sóknarmenn
Jón Gíslason SA
Sigurður Sigurðsson SA
Rúnar Rúnarsson SA
Stefán Hrafnsson SA
Jón Ingi Hallgrímsson SA
Hallur Árnason SR
Helgi Páll Þórisson SR
James Devine SR
Daði Örn Heimsson Birninum
Jónas Breki Magnússon Birninum
Árni Bergþórsson Kanada
Munu þessir leikmenn takast á við lið frá Ísrael, Kína, Kóreu, Búlgaríu og Belgíu.
Einnig hafa orðið smá breytingar á fararstjórn og hefur Bjarni Bjarnarsson, gjaldkeri ÍHÍ, hætt við að fara og hefur Ólafur Þór Gíslason tekið hans sæti og mun fylgja landsliðinu út til halds og trausts.
Ólafur er ekki ókunnur þeim verkum sem kunna að falla til við það umstang sem skapast í kringum hokkí lið þar sem meistaraflokkur SR hefur verið notið góðs af hans elju og þreki í því starfi sem hann hefur unnið í kringum hann.
Leikirnir
24.03.03 - Ísland gegn Ísrael
25.03.03 - Ísland gegn Belgíu
27.03.03 - Ísland gegn Kína
29.03.03 - Ísland gegn Búlgaríu
30.03.03 - Ísland gegn Kóreu
Áfram Ísland