Dags: 01.04.2003 18:52
Í gærdag kom heim frá Búlgaríu A-landslið Ísland í íshokkí eftir erfiða keppni.
Árangurinn hjá liðinu var einsog við var að búast miðað við þann erfiða riðil sem Ísland lenti í. Fyrir keppnina var ljóst að við ofurefli yrði að etja en smá vonarglætur voru þó inni á milli, að hægt væri að kannski að vinna einn eða tvo leiki ef menn héldu rétt á spöðunum.
Þegar lagt var í´ann var landsliðsfyrirliðinn Sigurður Sveinn Sigurðursson (SA) kominn með heiftarlegt kvef sem dró úr honum kraftinn jafnt og þétt. Fleiri áttu eftir að fá snert af kvefpestinni og ekki hjálpaði til hin búlgarska mengun.
Fyrsti leikurinn var við þá félaga Sergei Zak og co. í landsliði Ísrael.
Íslendingarnir byrjuðu vel og héldu Ísraelum í skefjum nokkuð vel eða fram á 12. mínútu, en þá skoraði Zak fyrir Ísrael. Fyrsta lotan fór því 0-1 fyrir Ísrael.
Sama var upp á teningnum í annarri lotu og baráttan hjá Íslendingum mikil. Þrátt fyrir það náði Roman Larin að skora annað mark fyrir Ísrael. Staðan því 0-2 fyrir Ísrael. Ísraelar komu ögn ákveðnari til leiks í þriðju lotu og náðu að skora mark strax í byrjun.
Rúmri mínútu síðar náði Jónas Breki Magnússon(BJ) að minnka muninn þegar hann skoraði ágætis mark eftir samspil þeirra Jóns Gíslasonar(SA). Ísraelar náðu þó að skora eitt mark til viðbótar áður en leiktíminn rann út. Lokastaðan því 1-4 fyrir Ísrael.
Næsti leikur var við Belgíu og í sem skemmstu máli þá sá Ísland ekki til sólar í þessum leik. Loturnar fóru 4-1, mark Íslands skoraði Jónas Breki Magnússon(BJ), 5-1, mark Íslands skoraði James Devine(SR) , og 1-0. Lokastaðan því 10-2 Belgíu í vil.
Eftir velþeginn frídag var leikur á móti Kína. Kínverjar voru svotil óskrifað blað fyrir þessa keppni.
Snemma leiks náðu þeir yfirhöndinni endaþótt það hefði ekki verið auðvelt þar sem Íslendingarnir veittu þeim gríðarlega mótspyrnu. Á stundum náðu Kínverjar ekki upp spili með góðu móti vegna góðar varnarvinnu Íslendinganna.
Fyrsta lotan fór 2-0 fyrir Kína. Önnur lota var einnig gríðarlega spennandi og virtist sem Íslendingarnir væru að ná tökum á leiknum. Mikil barátta var hjá báðum liðum og endaði lotan 0-0.
Í þriðju og síðustu lotunni var allt sett á fullt. Kínverja náðu að skora mark fljótlega í byrjun lotunnar og hvarf þá nokkuð vindurinn úr seglum landsliðsins. Rétt um miðja 3. lotu fékk Guðmundur Björgvinsson(SR) vægast sagt skrítinn dóm. Hann fékk Leikdóm sem fól í sér útilokun frá leiknum og leikbann í næsta leik. Þetta þótti einkennilegur dómur þar sem hann hafði ekki unnið sér inn þann dóm. Yfirdómarinn á mótinu var sammála íslensku liðstjórnendunum og breytti dómnum í Áfellisdóm sem fól í sér 2 10 mínútur og ekkert leikbann.
Kínverjar náðu að skora eitt mark til viðbótar áður en leikurinn var úti.
Endastaða því 4-0 fyrir Kína.
Næsti leikur var við gestgjafana Búlgaríu. Fyrir ári síðan átti Ísland góðan leik við Búlgari og munaði litlu að Ísland færi með sigurorð í þeirri viðureign.
Við Íslendingar voru nokkuð vissir um að við ættum góðan möguleika á sigri í þessum leik, en það var líklega sú sigurvissa sem kom okkurum koll á endanum. Búlgarir, sem voru eldri og reyndari, komu töluvert einbeittari til leiks og spiluðu feiknarvel á móti ungu og óreyndu liði Íslands. Þessi leikur endað 6-0 fyrir Búlgaríu.
Þarna var ljóst að Íslendingar voru dottnir úr riðlinum og lítið annað en að klára mótið með smá sæmd.
Síðasti leikurinn var á móti Norður Kóreu. Kóreumenn höfðu marga spræka skautamenn og oft náðu þeir að skauta fram hjá stórum og þungum Íslendingum. Loturnar fóru 0-4,1-1,0-2.
Mark Íslands skoraði Árni Bergþórsson(CA) með aðstoð frá Helga Páli Þórissyni(SR).
Skipulag mótsins var ágætt þó að ýmislegt hafi vantað, einsog t.d loftræstingu í búningsklefann o.þ.h.
Guðmundur Björgvinsson(SR) náði þeim vafasama titli að vera sá leikmaður í mótinu sem fékk flestar refsimínútur eða alls 28 mínútur, að meðaltali 5,60 mín í leik. Hann var nú ekki barnanna verstur þar sem kínverjinn Henan Liu var með 27 mínútur.
Núna er bara að jafna sig eftir þessi átök og búa sig undir þau næstu.