Dags: 08.04.2003 09:12
Í gærkvöldi lauk riðlakeppni NHL deildarinnar. Keppnin í vetur er búin að vera nokkuð jöfn og spennandi, þar sem nokkur lið hafa komið verulega á óvart. Þannig bjuggust fáir við að Ottawa Senators myndi standa uppi sem sigurvegari riðlakeppninnar, eða að Tampa Bay Lightning og Minnesota Wild myndu ná inn í úrslitakeppnina. Ennfremur áttu fáir von á því að hið stjörnumprýdda lið New York Rangers myndi ekki einu sinni ná inn í úrslitakeppnina. Stigahæsti leikmaður NHL deildarinnar, handhafi Art Ross bikarsins, er sænski, “miltislausi” snillingurinn Peter Forsberg í Colorado Avelance með 106 stig. Í öðru sæti er annar Svíi og félagi Forsbergs, Markus Naslund í Vancouver Canucks, með 104 stig. Markahæsti leikmaðurinn var svo Tékkinn Milan Hedjuk, sem lék í línu með Forsberg, með 50 mörk. Besti markvörður riðlakeppninnar var svo Finninn Marty Turco í Dallas Stars en hann fékk á sig einungis 1.72 að meðaltali í leik, sem er met í NHL, og 93.2% varin skot – sannarlega óvænt frammistaða. Í úrslitakeppninni munu eftirtalin lið etja kappi innbyrðis í fyrstu umferð en það lið sem fyrst vinnur 4 leiki af 7 kemst áfram í næstu umferð:
Austurriðill:
Ottawa Senators – New York Islanders
New Jersey Devils – Boston Bruins
Tampa Bay Lightning – Washington Capitals
Philadelphia Flyers – Toronto Maple Leaves
Vesturriðill:
Dallas Stars – Edmonton Oilers
Detroit Redwings – Anaheim Mighty Ducks
Colorado Avelance – Minnesota Wild
Vancouver Canucks – Saint Louis Blues