Fréttir

Total items: 1194

Skautanámskeið fyrir fullorðna - miðvikudaginn 16. apríl

Dags: 14.04.2003 10:07


Núna er komið að því!!
Eftir mikla eftirvæntingu og tilhlökkun verður skautanámskeið fyrir fullorðna haldið miðvikudaginn 16.apríl kl. 20:30 - 22:00.
Myndarlegur hópur manna hefur skráð sig en enn er möguleiki á að bæta nokkrum við.
Þeir sem hafa áhuga, og eru ekki búnir að skrá sig, er bent á að hafa samband við Helga P helgi@linuskautar.is og skrá sig.
Ráðlegt er að mæta ca. 30 mínútur fyrir tímann til að reima á sig skauta og gera sig klára fyrir átökin.
Fyrir þá sem ekki eiga skauta er hægt að leiga þá niður í höll og hjálmar fást lánaðir ókeypis.
Vonumst til að sjá sem flesta!!