Dags: 14.04.2003 10:20
Í gærkveldi lauk U18 keppninni "Björninn Cup" með öruggum sigri Green Bay PAckers frá Wisconsin. Þeir tefldu fram yfirburðarliði, enda úrvalslið frá Wisconsin, en einnig skipti miklu máli að leikmenn liðsins voru flestir 2 til 3 árum eldri en okkar strákar, t.a.m. í SR. Baráttan um annað sætið var hins vegar hörð milli U18 SR og U18 Bjarnarins. Leikar fóru þó svo að SR-ingar unnu góðan og verðskuldaðan sigur á Birninum í síðari leik þessara liða og höfnuðu því í öðru sæti. Oft á tíðum sýndu okkar strákar stórgóðan leik og mikla báráttu í þessu móti, sérstaklega á móti Green Bay og Birninum. Við höfum ástæðu til að vera ánægð með árangurinn og liðsheildina.
Að móti loknu voru valdir leikmenn mótsins og í þeim flokki var SR-ingurinn Aron Leví, sem kosinn var besti markmaður mótsins - glæsilegur árangur og mikil hvatning.
SR-ingar vilja að lokum þakka Birninum fyrir að skipuleggja mót af þessu tagi, enda augljóst hversu mikil lyftistöng fyrir íslenskt íshokkí heimsókn erlendra liða er - þarna fá okkar leimenn tækifæri til að bera sig saman við erlend lið og læra af þeim.