Dags: 23.04.2003 09:34
Árshátið SR verður haldin 2.maí n.k. en endanleg staðsetning hefur þó enn ekki verið ákveðin. Undirbúningur er hins vegar langt kominn og þeir sem staðráðnir eru í því að mæta vinsamlegast beðnir um að tilkynna komu sína í tölvupósti sr@skautafelag.is.
Nánari upplýsingar verða settar hér á vefinn á næstu dögum.
Síðasta árshátið var gríðarlega vel heppnuð og fólk skemmti sér vel. Ætlunin er að endurtaka leikinn í ár.
Boðið verður upp á heimatilbúin skemmtiatriði, bæði frá hokkídeildinni og listhlaupadeildinni.
Því er um að gera að mæta á árshátiðina og sletta úr klaufunum!!... því að hún er bara einusinni á ári.