Fréttir

Total items: 1194

Björninn Cup U-15: fyrstu leikir.

Dags: 09.05.2003 09:28


Í gærkvöldi hófst "Björninn Cup" fyrir þá sem eru fæddir 88 og yngri.
Eftir opnunarhátið léku fyrsta leikinn Farsta frá Svíþjóð og Björninn frá Reykjavík. Skemmst er frá því að segja að Björninn sá varla til sólar í þessum leik á móti stórum og sterkum Svíum, og endaði leikurinn 15-1 fyrir Fersta.
Seinni leikur kvöldsins var milli SR og Green Bay en þessi félög áttust einnig við í Björninn Cup U-18 mótinu í apríl. Ekki byrjaði leikurinn vel fyrir SR þar sem ekki tók gestina nema 15 sekúndur að skora fyrsta markið og eftir fáar mínútur var staðan orðinn 3-0 fyrir Green Bay; strákarnir hreinlega greinilega ofurliði bornir þessar fyrstu mínútur.
Eftir þessa slæmu byrjun sótti SR í sig veðrið, Aron Leví fór að verja mjög vel, og SR-ingar fóru að spila vörnina mun betur og oft brá fyrir ágætis spili í sóknaraðgerðum. Green Bay skoraði ekki meira í þessum leikhluta. Í seinni leikhluta hélst baráttan áfram og Green Bay bætti við þremur mörkum. Leikurinn endaði því 6-0 fyrir þá.
Mikill stærðarmunur var á þessum liðum, t.d. náði Pétur Maack (4.fl, SR) þeim hæsta í Green Bay rétt upp fyrir mjaðmir, í fullum herklæðum, en flestir leikmenn Green Bay voru annars töluvert stærri og sterkari en okkar strákar.
Þrátt fyrir þennan liðsmun tókst okkar strákum að standa nokkuð vel í þeim og geta verið ánægðir eð frammistöðuna.
Fleiri leikir eru á dagskránni en hægt er að sjá hana á bjorninn.com
Áfram SR!!