Dags: 13.06.2003 11:09
Á aðalfundi IIHF nýverið var ákveðið að Ísland yrði gestgjafi Heimsmeistarakeppni karla í 3. deild á næsta ári. Ljóst er því að karlalið okkar leikur hér heima við lið Tyrklands, Mexíkó, Armeníu og Írlands.
Dagsetning þessarar keppni liggur enn ekki fyrir. Það er óhætt að segja að þessi niðurstaða sé alger hvalreki fyrir íshokkíáhugamenn á Íslandi og á auk þess eflaust eftir að vekja töluverða fjölmiðlaathygli.
ÁFRAM ÍSLAND