Fréttir

Total items: 1194

Styttist í nýtt tímabil

Dags: 08.08.2003 19:34


Undirbúningur fyrir nýtt tímabil er þegar hafin hjá íshokkídeild SR en stjórn þess er búin að hittast reglulega í sumar þar sem línur hafa verið lagðar. Fyrirsjánlegt er að miklar breytingar verða á starfi deildarinnar í vetur. T.a.m. mun æfingatímum sem íshokkídeild SR stendur til boða fjölga verulega. Þetta þýðir m.a. fjölgun aðstoðarþjálfara og talsverða endurskipulagningu í allri þjálfun en búast má við því að æfingum muni fjölga fyrst og fremst í eldri flokkum og meistaraflokki.

Sú nýjung verður tekin upp að allir nýjir félagar í íshokkídeild verða fyrst að byrja í skautaskóla þar sem undirstöðuatriði skautaiðkunar verða kennd. Er nýliðinn hefur náð nógu góðum tökum á skautunum að mati kennara flyst hann yfir í sinn flokk í íshokkídeildinni. Með þessu fyrirkomulagi fær nýliðinn betri tíma til að aðlagast íþróttinni og lærir um leið betur undirstöður skautaiðkunar.

Með tilkomu nýju skautahallarinnar í Grafarvogi flytur Björninn alla sína starfsemi þangað. Þetta þýðir að SR mun sitja eitt að æfinga- og félagsaðstöðunni í Laugardalnum. Þetta mun auðvelda mjög alla skipulagningu og uppbyggingastarf, jafnframt því að nú eignast SR sinn eiginn heimavöll. Þessar breyttu aðstæður munu efla mjög allt félagsstarf okkar og bjóða upp á nýja möguleika í nýtingu og starfi. Það er því ástæða til að hlakka til vetrarins.

Stjórnin