Dags: 19.08.2003 20:10
Endaþótt nýtt tímabil sé ekki enn formlega hafið iðar skautahöllin af lífi þessa dagana. Listhlaupara og íshokkímenn má þar sjá frá morgni til kvölds á svellinu. Undanfarna daga hafa m.a. meistaraflokkur SR og Gulldrengirnir æft af kappi, enda ekki vanþörf á þar sem sumir koma greinilega of þungir undan sumri. En áhuginn er mikill og góð mæting á þessar æfingar. Það stefnir því í gott tímabil.