Dags: 19.08.2003 20:21
Í næstu viku hefjast æfingabúðir fyrir eldri flokka SR, þ.e. 2., 3. og 4. flokk. Æft er öll kvöld frá mánudegi til föstudags. Þessum æfingum stýrir Richard Tahtinen úr Mfl. og sér til fulltingis hefur hann fengið úr Mfl. þá Ingvar Þór Jónsson, fyrirliða og Gunnlaug Björnsson, markvörð.
Æfingabúðirnar eru fyrst og fremst hugsaðar til að þjálfa ýmsa þætti sem minni tími gefst til að þjálfa á almennum æfingum yfir veturinn. Hver leikmaður fær síðan einstaklingsmat þar sem styrkleikar og veikleikar hans eru tíundaðir. Auk þess verða fyrirlestrar og þrekþjálfun. Hægt er að skrá sig á sr@skautafelag.is en mæting fyrir alla hópa er mánudaginn 25. ágúst kl. 16:30 í Skautahöllinni.