Dags: 22.09.2003 23:27
Þessa dagana fer fram skráning í skautaskóla íshokkídeildarinnar (á sr@skautafelag.is eða á æfingatíma; sjá æfingatöflu). Allir byrjendur í íshokkí fara fyrst í skautaskólann og ljúka honum áður en þeir byrja í íshokkídeildinni.
Æfingagjöld eru sem hér segir:
Skautaskóli = 4.000 kr á mán.
4. 5. 6. og 7. flokkur = 33.000 kr
Kvennaflokkur = 33.000 kr
Aðrir flokkar = 39.000 kr
Systkinaafsláttur: 25%
Skv. þessu lækka æfingagjöld í yngri flokkum en hækka lítillega í eldri flokkum. Æfingagjöld miðast m.a. við ístíma.
Allir byrjendur okkar byrja í skautaskólanum áður en þeir ganga inn í íshokkídeildina. Allir leikmenn okkar sem æfðu með SR í fyrra þurfa að fylla út nýtt skráningarblað fyrir fyrstu æfingu sína.
Ganga þarf frá æfingagjöldum í íshokkídeild fyrir 1.október en notast má við raðgreiðslur. Æfingagjöld í skautaskólann greiðast eftir fyrstu æfingu.