Dags: 18.10.2003 21:45
Sunnudaginn 19. október verður SR með bingó í Skautahöllinni frá kl. 16:00 - 18:00 í félagsaðstöðu þess. Bingóið er til styrktar 3. og 4. flokki sem er að fara í keppnisferð til Svíþjóðar og Danmerkur í lok mánaðarins. Allir velunnarar SR eru hvattir til að mæta, taka með sér gesti, og taka þátt í skemmtilegum leik.