Dags: 20.10.2003 17:56
Í gærkvöldi léku SR og Björninn sinn fyrsta æfingaleik. Einstaklega vel var mætt í höllina og góð stemmning í stúkunni. Búast mátti við að SR-ingar hefðu þó nokkra yfirburði í þoli fram yfir þá Bjarnarmenn, enda ekki skrítið þar sem Bjarnarmenn höfðu einungis fengið 6 æfingar fyrir þennan leik.
SR-ingar voru eitthvað stessaðir í fyrri hluta leiksins og náðu þeir ekki að stilla saman strengi sína fyrr en í seinni hluta leiksins er þeir röðuðu inn mörkunum í fjarveru nokkurra lykilleikmanna Bjarnarins sem fengu þá að hvíla sig. Hlutskarpastir í liði SR voru án efa James Devine, Elvar Jónsteinsson, og Richard Eríkur sem sýndu á köflum frábæra takta. SR-ingar fengu stóra-bróður partinn af refsimínútum í þessum leik og lentu þeir hvað eftir annað í boxinu. Mátti halda að lágmarksdómur á SR-ing hafi verið 2 10 mín.
Tveir nýjir leikmenn litu dagsins ljós í liði Bjarnarmanna. Þar voru á ferð liðhlauparnir úr SA, þeir Birgir Örn Sveinsson og Stefán Hrafnsson. Kannski hefur æfinga og þrekleysi sagt til sín en Birgir þurfti að skófla pekkinum alls 11 sinnum úr markinu hjá sér, og Stefán náði ekki sínu "venjulega" marka skori.
Come-back leiksins hefur án efa verið Sigurðar Sveinbjarnarsonar sem lítið var með í fyrra, sem nú lék án fóstbróðurs hans og félaga Jónasar Breka Magnússonar sem flogin er af landi brott til að spila með hinum danska Birni (www.bears.dk).
Næsti leikur hjá meistaraflokki SR er laugardaginn 25.október. Tímasetning verður auglýst síðar.
Áfram SR!!