Fréttir

Total items: 1194

Íslandsmót í 3. fl: SR vann SA 4-3

Dags: 26.10.2003 11:43


Strax eftir leik meistaraflokks áttust við SR og SA í sínum fyrsta leik í Íslandsmótinu. Leikurinn reyndist hin besta skemmtun þar sem SR-ingar léku við hvern sinn fingur. Lokastaðan 4-3 gefur ekki beint rétta mynd af gangi leiksins því SR-ingar yfirspiluðu SA-inga á löngum köflum og máttu SA-menn þakka markverði sínum fyrir að ekki fór verr, ásamt feikigóðri baráttu í vörninni. Þegar u.þ.b. 2 mín voru eftir var staðan 4-1 en þá fengu SR-ingar á sig tvö ódýr mörk. Það breytti þó ekki þeirri staðreynd að SR-ingar sýndu stórgóðan leik, þar sem pökkurinn gekk manna á milli og allir virtust vita hvað þeir áttu gera, bæði í vörn og sókn. Leikurinn var því gott veganesti fyrir 3.fl SR sem nú heldur í víking til Svíþjóðar og Danmerkur í næstu viku þar sem þeir fá að spreyta sig á nokkrum sænskum og dönskum liðum.
Mörk SR-inga skoruðu Sandri (2), Sindri (1) og Þorsteinn (1).